Sjálfsmynd þjóðar og Evrópusambandið
Peter Chr. Dyrberg, forstöðumaður Evrópuréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík, hélt erindi á hádegisfundi lagadeildar í dag, þar sem hann fjallað um sambandið á milli Evrópusambandsins og sjálfsmyndar aðildarríkjanna. Erindið bar yfirskriftina National identity and the EU (Sjálfsmynd þjóðar og Evrópusambandið). Í erindinu velti Peter fyrir sér hvaða þættir í eðli og starfi Evrópusambandsins tryggi að sjálfsmynd og séreinkenni þjóðanna séu virt og eins hverjir væru kostir og gallar þess að gera það. Að loknum fyrirlestri Peters fóru fram líflegar umræður.
Fréttablaðið birti viðtal við Peter í dag vegna fyrirlestrarins.

