Laganemar á Kvíabryggju
Meistaranemar við lagadeild HR heimsóttu fangelsið á Kvíabryggju fyrir stuttu. Fangelsið er frábrugðið öðrum fangelsum á Íslandi að því leyti að þar eru ekki rimlar fyrir gluggum, herbergjum er ekki læst yfir nóttina og svæðið er girt af eins og sveitabýli.
Geirmundur Vilhjálmsson forstöðumaður tók á móti hópnum, sýndi honum vistarverur og aðbúnað fanganna tuttugu og tveggja og fjallaði um inntak fangelsisrefsingar og fangasamfélagið vítt og breytt.
Markmið heimsóknar af þessu tagi er fyrst og fremst að opna augu nemenda fyrir þeim raunveruleika sem blasir við þeim sem dæmdir eru til refsivistar og þær aðstæður sem fangar búa við.

Hópurinn með fangelsið í baksýn.

Setustofa fangelsisins. Geirmundur fangelsisstjóri situr lengst til vinstri.

