Mikil eftirspurn eftir námi við Háskólann í Reykjavík
Háskólinn í Reykjavík hefur opnað fyrir umsóknir fyrir vorönn 2010 vegna fjölda fyrirspurna og óska fólks um að fá að hefja nám um áramót. Þetta er í annað sinn sem skólinn tekur inn nemendur í nær allar deildir skólans um áramót, bæði grunnnám og meistaranám, en um síðustu áramót tók skólinn inn um 400 nýnema (rétt er að taka fram að ekki verða teknir inn nýnemar í grunnnám lagadeildar).
Umsóknarfrestur um skólavist á vorönn er til 30. nóvember. Umsækjendur geta sótt um rafrænt á vef skólans, www.hr.is. Þar er ennfremur að finna upplýsingar um inntökuskilyrði og fylgigögn með umsókn. Aðstoð við útfyllingu rafrænna umsókna er hægt að fá í síma 599 6200. Þá geta áhugasamir einnig pantað viðtalstíma hjá námsráðgjöfum skólans og fengið ráðgjöf áður en þeir ákveða að sækja um skólavist.
Að gefnu tilefni vill kennslusvið HR hvetja þá sem hug hafa á að sækja um skólavist að gera slíkt fyrr en síðar. Starfsfólk HR leggur sig fram um að veita umsækjendum góða þjónustu og svara þeim eins hratt og auðið er. HR hefur fyrir löngu skapað sér sérstöðu sem háskóli atvinnulífsins, en hann er stærsti tækni- og viðskiptaháskóli landsins og eru fimm deildir starfræktar við skólann; lagadeild, tölvunarfræðideild, viðskiptadeild, tækni- og verkfræðideild og kennslufræði- og lýðheilsudeild.
Nýnemastyrkir fyrir afburðanemendur á grunnstigi og meistarastigi eru í boði.
Háskólinn í Reykjavík flytur starfsemi sína um áramótin í nýja og glæsilega byggingu sem nú rís við rætur Öskjuhlíðar. Þar verður að finna eina fullkomnustu háskólabyggingu Evrópu.

