Námsferð til Eistland og Finnlands
Tíu nemendur úr tækni- og verkfræðideild (TVD) Háskólans í Reykjavík og þrír kennarar úr TVD og kennslufræði og lýðheilsudeild (KLD) eru nýkomnir heim úr námsferð til Finnlands og Eistlands . Meginmarkmið ferðarinnar var að kynnast því hvernig Eistland tekst á við auknar kröfur um endurnýjanlega og vistvæna orku. Í því skyni var ferðast um Eistland og farið í heimsóknir í kolanámur, vatnshreinsistöð, sementsverksmiðju, vatnsaflsver, varmaorkuver, lífdíselverksmiðju, vindmyllugarð og náttúruverndarsvæði. Nemendur tóku þátt í vinnustofu um orkumál og umhverfisáhrif þar sem yfir 60 þátttakendur frá Íslandi, Eistlandi, Finnlandi, Þýskalandi, Grikklandi, Eþíópíu og Alsír kynntu aðstæður í sínu landi.
Ferðin var hluti af verkefninu Sustainable Water and Energy management in Environmental Engineering sem er styrkt af Nordplus.




