Forsíðufréttir

Foreldrar eru meira með börnum sínum nú en áður

22.10.2009

Umfangsmikil könnun Rannsóknar & greiningar við Háskólann í Reykjavík og menntamálaráðuneytisins, um líðan og hagi íslenskra skólabarna frá 10-16 ára, var kynnt á málþingi í dag. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR og Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við sömu deild, kynntu niðurstöður rannsóknarinnar en þær hafa verið gefnar út í tveimur viðamiklum skýrslum.

Á meðal athyglisverðustu niðurstaðna rannsóknarinnar má nefna að íslenskum börnum og unglingum virðist ekki líða verr eftir að kreppan skall á, miðað við líðan þeirra í sambærilegri könnun sem gerð var fyrir tveimur árum. Öðru nær, þeim líður jafnvel betur. Svo virðist sem foreldrum hafi tekist að halda vel utan um börnin sín á þessum óvissutímum, þeir verja meiri tíma með þeim og afleiðingarnar virðast m.a. vera að færri börnum líður illa og færri börn finna til einmanaleika.

Hér má kynna sér fjölmiðlaumfjöllun um rannsóknina.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica