Forsíðufréttir

Knattspyrnumenn HR langbestir!

1.11.2009

Enn og aftur hafa afreksmenn Háskólans í Reykjavík sýnt og sannað líkamlegt og andlegt atgervi sitt og yfirburði. Hinir undursamlegu framverðir glæsileika og fágunar leiddu Háskólann í Reykjavík til öndvegis er þeir lögðu félaga sína úr Háskóla Íslands að velli í fyrsta opinbera knattspyrnuleik á milli skólanna. Skoruðu okkar menn eina mark leiksins og sendu andstæðingana til síns heima með skottið á milli fótanna .

Ljóst var, allt frá því er liðin fylktu liði inn á grænsvörðinn, að hér væru merkir hlutir í aðsigi. Allt yfirbragð okkar manna bar þess merki að hér færu einir hinir mestu afreksmenn þjóðar okkar. Mátti það greina á sjálfstrausti þeirra, fríðum svip og líkamlegu hreysti svo helst minnti á forna guði og hetjur Grikkja. Eða eins og einn helsti heimildarmaður tíðindamanns HR af hinu eðlara kyni orðaði það: „Þeir voru sjúklegir!“

Allt frá fyrsta flauti var ljóst hvert stefndi. Enda fór það svo að einn af okkar knáustu piltum, glæsimennið Óskar Örn Hauksson, sem að öðru jöfnu iðkar list sína og íþrótt með Knattspyrnufélagi Reykjavíkur, elsta og sigursælasta knattspyrnuliði landsins, sendi knöttinn í mark andstæðinganna þegar á fyrstu mínútum viðureignarinnar. Létu okkar menn þar við sitja enda vegur hærra í eðli þeirra og uppeldi virðing fyrir smælingjunum en þörf til að undirstrika augljósa og alkunna yfirburði.

Gengu okkar menn því af velli sem óumdeildir sigurvegarar og háskólameistarar í knattspyrnu árið 2009 við gríðarlegan fögnuð áhorfenda. Ætlaði fagnaðarlátunum seint að linna og er ekki ólíklegt að þessu afreki verði vel fagnað bæði innanskóla sem utan langt frameftir viku. Má þess vænta að piltarnir af Vesturbæjarmelum geri atlögu að okkar mönnum að ári, en fátt er í kortunum sem bendir til þess að okkar glæsisveinar muni þurfa að lúta í gras um ókomin ár.

Knattspyrnuliði Háskólans í Reykjavík eru sendar hugheilar hamingjuóskir með þetta afrek sem tryggir þeim veglegan og ævarandi sess á spjöldum sögunnar.

Þið eru óskabörn HR, sómi hans, sverð og skjöldur!

Fótbolti HR-HÍ 6

Fótbolti HR-HÍ 2

Fótbolti HR-HÍ 4

Fótbolti HR-HÍ

Fótbolti HR-HÍ 2

Fótbolti HR-HÍ 5


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica