Forsíðufréttir

Íslandsmet í róðri

31.10.2009

Hulda Bjarkar Gylfadóttir, nemi í íþróttafræði við HR, setti í gær Íslandsmet í róðri, en Hulda reri 103 km í róðravél í Sporthúsinu í Kópavogi. Hulda sat við árar í 11 klukkustundir. Tilgangur þessarar „ferðar“ var að safna áheitum sem renna til átaksins Bætum brjóst, en stefnt er að því að safna fyrir röntgentæki fyrir Landspítalann og bæta þannig þjónustu og meðferð við konur með brjóstakrabbamein.

Þeir sem ekki komust á staðinn en vilja styrkja gott málefni geta millifært beint á reikning Bætum brjóst. Kennitalan er 440609-1980 og bankinn er 0140-15-380954.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica