Ást í endurvinnslu
Hugmynd um að endurvinna skartgripi fólks eftir sambandsslit var valin besta viðskiptahugmyndin á nýafstöðnu námskeiði Háskólans í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Verkefnið ber heitið „Love Recycled“, og gengur hugmyndin í stuttu máli út á að fólk sem gefið hefur hvort öðru skartgripi í ástarsambandi, geti, ef og þegar að sambandsslitum kemur, látið endurvinna skartið og gefið ágóðann til góðgerðarmála.
Enn er óvíst hvort viðskiptahugmyndin verði að veruleika en þessi hugmynd þótti sú besta af fjórtán hugmyndum námskeiðsins þar sem þemað var „góðverk“. Alls tóku 7 nemendur þátt í þessu verkefni; Haraldur Unason Diego, Alexander Clemm og Caroline Inge Baumann, öll nemendur við viðskiptadeild HR og fjórir nemendur Listaháskólans; Svala Hjörleifsdóttir, Bergþóra Jónsdóttir, Guðbjörg Tómasdóttir og Arnar Freyr Guðmundsson.
Fréttablaðið gerir þessu verkefni skil í blaðinu í dag.

