Forsíðufréttir

Leiðangur inn í heim tækni og vísinda

9.11.2009

120 krakkar í 8. – 10. bekk Álftamýrarskóla hafa á síðustu vikum farið í spennandi leiðangur inn í heim vísinda og tækni í samstarfi við tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Verkefninu, sem nefnist Hringekjan, er ætlað að gefa krökkunum nýja og spennandi sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra og áhuga á tæknigreinum.

Krakkarnir hafa m.a. lært um hvernig verkfræðin nýtist í umferðinni og hvað gervigreind og gervigreindarrannsóknir ganga út á. Þá hafa þeir kynnt sér hvernig hægt er að láta tölvur greina texta og hvernig hægt er að nýta þær í tungumálanámi.

Í öllum verkefnum og kennslu er lögð rík áhersla á að sýna börnunum leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefnum.

Hringekjan-1

Hringekjan-2

Hringekjan-3


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica