Bestu knattspyrnudómarar landsins í læri hjá íþróttasviði HR
Líkamlegt og andlegt atgervi bestu knattspyrnudómara landsins tekur að öllum líkindum miklum stakkaskiptum á næstu vikum.
Það er í öllu falli markmið nýs sameiginlegs 4ra ára samstarfsverkefnis íþróttasviðs Háskólans í Reykjavík og KSÍ. Verkefninu var ýtt úr vör í síðustu viku, en þá mættu 50 bestu knattspyrnudómarar landsins til leiks og fóru í allsherjar mælingar á líkamsástandi. Á meðal þess sem mælt var var þol, snerpa, kraftþol, liðleiki, hæð, þyngd og fituprósenta. Í dag hófu dómararnir svo æfingar undir stjórn 3ja nemenda á lokaári íþróttafræðinnar og koma þeir til með að æfa undir stjórn þeirra tvisvar í viku.
Samskonar mælingar og gerðar voru í síðustu viku verða svo gerðar á dómurunum á sex vikna fresti í vetur. Auk æfinga og mælinga fá dómararnir fræðslu um þjálffræði, næringarfræði og sálrænan undirbúning dómara frá sérfræðingum íþróttasviðs HR.
Ætlunin er svo að nýta niðurstöður mælinganna í lokaverkefni nemenda í BSc-námi í íþróttafræði.







