Nemendur skoða nýbygginguna við Nauthólsvík
Vel á þriðja hundruð nemendur HR mættu síðastliðinn sunnudag til að skoða nýbyggingu HR við Nauthólsvík. Húsnæðið verður tekið í notkun í áföngum, sá fyrsti þann 11. janúar n.k. Það verða tækni- og verkfræðideild, tölvunarfræðideild og viðskiptadeild sem flytja fyrst. Aðrir koma haustið 2010.
Í upphafi fluttu Svafa Grönfeld, rektor HR og Sunna Magnúsdóttir, formaður Stúdentafélags HR stutt ávörp í norðan nepjunni og Gospelkór Stúdentafélags HR flutti tvö lög í miðju byggingarinnar.
Að því loknu fóru nemendur í skoðunarferð um húsið undir leiðsögn nokkurra af þeim starfsmönnum HR sem hafa unnið mest í byggingunni og þekkja þar hvern krók og kima. Greinilegt var af viðbrögðum nemenda að flestir höfðu ekki áttað sig á því hversu stórkostleg aðstaðan verður og hve mikil áhersla er lögð á birtu, hreint loft, góða kennsluaðstöðu og tækni í kennslustofum. Glöggir nemendur tóku einnig eftir þeirri áherslu sem lögð er á ódýr og hagkvæm byggingarefni.
Það kom fram í máli rektors að það væri ekki húsnæðið sem skiptir öllu máli heldur það sem þar fer fram, menntun, rannsóknir og lifandi háskólasamfélag. Þó skiptir húsnæðið auðvitað einnig máli, þar sem það myndar þá umgjörð og aðstöðu sem við öll störfum við.
Skoðunarferðinni lauk í einni af stærstu kennslustofnum nýju byggingarinnar þar sem boðið var upp á kók og prins póló.
Nokkrar myndir úr skoðunarferðinni






