Forsíðufréttir
Háskólinn í Reykjavík leitar eftir hugmyndum sem gætu orðið FRÆ ÁRSINS 2010
Í tilefni af Alþjóðlegu athafnavikunni sem HR er virkur þátttakandi í, hefur verið ákveðið að efna til samkeppni sem nefnist FRÆ ÁRSINS. Markmiðið er að styðja við frumstig nýsköpunar og að gefa frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki. Að samkeppninni standa Háskólinn í Reykjavík, Klak - Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auður Capital.
Háskólinn í Reykjavík leitar því eftir hugmyndum sem gætu orðið FRÆ ÁRSINS 2010. Aðstandendur þeirrar hugmyndar sem valin verður munu hljóta 1.000.000.- kr. í styrk, vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins. Með þessu fá frumkvöðlar ekki aðeins fjárstuðning til að vinna að hugmyndinni, heldur einnig það umhverfi, þá þjálfun og þann stuðning sem þarf til að fullgera viðskiptaáætlun og koma á fót starfandi sprotafyrirtæki.
Allir einstaklingar með lögheimili á Íslandi geta sent inn eigin hugmyndir og/eða tilnefnt hugmyndir annarra í umboði þeirra. Allar hugmyndir þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hugmyndin er ný
- Hugmyndin er framkvæmanleg
- Ekki hefur verið skráð fyrirtæki um hugmyndina
Hugmyndir þurfa að berast fyrir 31. desember nk., en tilkynnt verður um FRÆ ÁRSINS 2010 þann 14. janúar nk.
Öllum er velkomið að taka þátt en sérstakt tillit verður tekið til hugmynda sem tengjast tækni og fólki, svo sem nýjar tæknihugmyndir og hugmyndir að lausnum sem stuðla að betra samfélagi.
Nánari upplýsingar er að finna á vef Háskólans í Reykjavík, hr.is/fr2010