Forsíðufréttir

Vel heppnuð athafnavika

20.11.2009

Hátt í þúsund manns sóttu hina fjölmörgu og fjölbreyttu atburði á vegum Háskólans í Reykjavík sem tók virkan þátt í Alþjóðlegu athafnavikunni sem lýkur í dag. Fjölmargir fyrirlestrar voru haldnir á vegum HR, í þeim var m.a. fjallað um nýsköpun, frumkvöðla og að virkja athafnasemi einstaklinga. HR ýtti einnig samkeppninni Fræ ársins 2010 úr vör, þar sem markmiðið er að styrkja frumkvöðla til að stofna sprotafyrirtæki.

Hér að neðan getur að líta myndir frá ýmsum atburðum HR í Athafnavikunni, en sem dæmi um það sem var í boði má nefna:

  • Göngum lengravar stefnumót við framhaldsskólanema þar sem grunnur var lagður að árangri og athafnasemi fyrir framtíðina.
  • Ef við – þá þú! Hvernig ná kvenfrumkvöðlar árangri? Fyrirlestrar og reynslusögur kvenna.
  • Á athafnatorgi Hugmyndahúss háskólanna kynntu athafnakonur fyrirtæki og starfsemi sína, framleiðslu jafnt sem ferðalag hugmyndanna.
  • Lögfræðiþjónusta Lögréttu bauð upp á lögfræðiráðgjöf á sviði hugréttar.
  • Haldinn var fyrirlesturinn Taktu af skarið um mátt frumkvæðis og áhrifa til aukins árangurs í lífi og starfi.
  • Haldin var leiðtoga- og nýsköpunarvinnustofa fyrir stjórnir nemendafélaga framhaldsskólanema.
  • Nemendur í Réttarholtsskóla fengu kennslu um fjármálalæsi og frumkvöðla.
  • Kynntar voru nýjar aðferðir við hugbúnaðarþróun.
  • Sýnt var hvernig bensínbíll var breytt í rafbíl.
  • Ungir frumkvöðlar í grunnskólum komu í heimsókn ásamt aðstandendum þeirra.
  • Sköpun viðskiptahugmynda á vegum Viðskiptasmiðju Klaks.
  • Fyrirlestur um samfélagsábyrga nýsköpun.
  • Kynningarþjálfun Klaksins.

Athafnavika-1

Athafnavika-2

Athafnavika-3

Athafnavika-4

Athafnavika-5

Athafnavika-6

Athafnavika-7


 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica