Föt fyrir Fjölskylduhjálpina
Fulltrúar nemenda og starfsmanna Háskólans í Reykjavík afhentu Fjölskylduhjálp Íslands í dag fatnað sem safnað hefur verið saman á síðustu dögum á meðal nemenda og starfsmanna skólans. Alls söfnuðustu um 600 flíkur af öllum stærðum og gerðum.
Verkefnið er hluti af Fræ-inu, en það er verkefni allra nemenda og starfsmanna HR, og felst í því að veita samtökum sem stuðla að almannaheillum, endurgjaldslausa þjónustu.
Samkvæmt upplýsingum frá Ásgerði Jónu Flosadóttur, formanni Fjölskylduhjálparinnar, kemur þessi fatagjöf sér afskaplega vel fyrir jólin, en um 16.000 manns eru án atvinnu um þessar mundir.
Fjölskylduhjálpin tekur á móti fatnaði og matföngum að Eskihlíð 2-4 í Reykjavík þriðjudaga kl 9-13, miðvikudaga kl. 9-18 og fimmtudaga kl. 9-13.
Símanúmer Fjölskylduhjálparinnar eru 551 3360 og 892 9603. Einnig er tekið á móti framlögum á reikningi Fjölskylduhjálpar Íslands bnr. 101-26-66090, kt. 660903-2590.
Þá er Fjölskylduhjálpin á Facebook.
Á myndinni hér að neðan má sjá Evu Þengilsdóttur, markaðsstjóra HR og Grétu Matthíasdóttur, forstöðumann Atvinnuþjónustu HR við fatabunkann sem Fjölskylduhjálpinni var færður.

