Forsíðufréttir

Rannís styrkir steinsteypurannsóknir

8.12.2009

Tækniþróunarsjóður Rannís hefur samþykkt að styrkja verkefnið Íslenskar basalttrefjar, en byggingarsvið HR er þátttakandi í verkefninu.

Verkefnið snýst um að kanna möguleikann á að nota basalttrefjar til að styrkja og bæta gæði steinsteyptra mannvirkja hérlendis.

Tilgangurinn er m.a. að sýna fram á að brotorka steypunnar aukist með notkun basalttrefjanna, ef miðað er við brotorku í hefðbundinni trefjalausri steypu. Þetta er t.d. sérstaklega mikilvægt í mannvirkjum á jarðskjálftasvæðum. Í öðru lagi verður kannaður möguleikinn á því að nota “bendistál” gert úr basalti í steinsteypu í staðinn fyrir steypustyrktarstál og hindra þar með steypuskemmdir vegna ryðmyndunar. Hugmyndin er að bendistál komi að meira eða minna leyti í stað bendistáls í steypuvirkjum. Í þriðja lagi, verður kannað hvaða möguleikar eru á að nota plástursmottur, gerðar úr basalttrefjum, sem öflugt og hagkvæmt viðgerðarefni á steinsteyptum húsum. Í fjórða lagi að afla þekkingar á notkun basalttrefja í malbik, m.a. til að auka stöðugleika þess og minnka þannig hjólför af völdum skriðs í malbiki.

Professor Ólafur H. Wallewik og Eyþór R. Þórhallsson, dósent  við tækni- og verkfræðideild HR, stýra verkefninu fyrir hönd HR, en aðrir þátttakendur í verkefninu eru:

  • Hátæknisetur Íslands
  • Nýsköpunarmiðstöð Íslands
  • Mannvit ehf.
  • Einingaverksmiðjan hf.

 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica