Nemendur Álftamýrarskóla heiðraðir
Háskólinn í Reykjavík heiðraði í dag 120 nemendur úr 8. – 10. bekk Álftamýrarskóla sem í vetur hafa tekið þátt í samstarfsverkefninu Hringekjan. Tilgangur þess var að gefa krökkunum nýja og spennandi sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra og áhuga á tæknigreinum. Á annan tug kennara úr Háskólanum í Reykjavík kom að verkefninu og leiðbeindi krökkunum, hver á sínu sérsviði.
Krakkarnir hafa m.a. lært um hvernig verkfræðin nýtist í umferðinni og hvað gervigreind og gervigreindarrannsóknir ganga út á. Þá hafa þeir kynnt sér hvernig hægt er að láta tölvur greina texta og hvernig hægt er að nýta þær í tungumálanámi.
Í öllum verkefnum og kennslu var lögð rík áhersla á að sýna börnunum leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefnum.
Svafa Grönfeldt, rektor HR, bauð krakkana velkomna í skólann í morgun. Síðan afhentu forsetar tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar, Ari Kristinn Jónsson og Gunnar Guðni Tómasson, hverjum nemanda viðurkenningarskírteini fyrir þátttöku í námskeiðinu og að endingu voru nemendurnir leystir út með mandarínum og piparkökum.

