Forsíðufréttir

Geir Gunnlaugsson, prófessor við KLD, skipaður landlæknir

1.1.2010

Heilbrigðisráðherra hefur skipað dr. Geir Gunnlaugsson, prófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, landlækni frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. Geir er skipaður til fimm ára.

Dr. Geir Gunnlaugsson tók læknispróf frá Háskóla Íslands 1978 og varð síðan sérfræðingur í barnalækningum, hann tók doktorspróf frá Karolinsku stofnuninni í Stokkhólmi 1993 og masterspróf í lýðheilsufræðum frá sömu stofnun 1997. Hann starfar nú sem prófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík. Hann hefur aflað sér mikillar þekkingar og reynslu af lýðheilsustörfum, bæði hérlendis og erlendis, starfaði um nokkurra ára skeið að uppbyggingu og stefnumótun heilbrigðisþjónustu í þróunarlöndum. Geir starfaði sem forstöðumaður og yfirlæknir við Miðstöð heilsuverndar barna til margra ára.  Þá hefur hann verið afkastamikill fræðimaður og kennari.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica