Forsíðufréttir

1000 manns fluttu HR andann í Nauthólsvík

11.1.2010

Um 1000 manns, nemendur, kennarar og annað starfsfólk Háskólans í Reykjavík gengu fylktu liði frá aðalbyggingu HR í Ofanleiti og niður að glæsilegri nýbyggingu HR í Nauthólsvík í morgun, en starfsemi skólans hófst þar í  dag í glæsilegri 30.000 fermetra byggingu. Gleði og eftirvænting skein út úr andlitum allra þegar þeir lögðu af stað undir dúndrandi trommuslætti með logandi kyndla og þjóðfána þeirra 23ja þjóðerna sem eiga fulltrúa á meðal starfsmanna og nemenda skólans.

Á áfangastað beið göngufólksins heitt kakó og kleinur og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, Svafa Grönfeldt, rektor HR, Ari Kristinn Jónsson, verðandi rektor HR og Sunna Magnúsdóttir, formaður Stúdentafélags HR, fluttu stutt ávörp. Gríðarleg stemning og gleði einkenndi athöfnina og samhugur HR-inga hefur sjaldan eða aldrei verið sterkari. Kennsla hófst svo stuttu síðar og starfsemi Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík er þar með komin á fullt.

Myndirnar hér að neðan eru frá göngunni og athöfninni í morgun og þær segja meira en 1000 orð.

Flutningur 1

Flutningur 2

Flutningur 3

Flutningur 4

Flutningur 5

Flutningur 6

Flutningur 7

Flutningur 8

Flutningur 9


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica