Forsíðufréttir

Verður takmarkaðri ábyrgð hluthafa aflétt?

12.1.2010

Lagadeild HR stóð fyrir hádegisfundi í dag þar sem fjallað var ýmis lagaleg og siðferðileg álitamál sem upp koma þegar hlutafélagaformið er misnotað.

Mikill áhugi virðist vera á umræðum af þessu tagi þessi misserin, alltént var húsfyllir á fundinum. Tvö erindi voru flutt á fundinum. Annars vegar fjallaði Jóhannes Rúnar Jóhannsson, hæstaréttarlögmaður og aðjúnkt við HR, um eðli takmarkaðrar ábyrgðar í hlutafélögum og hvort unnt væri að víkja frá henni í undantekningartilvikum. Hins vegar fjallaði Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðingur við HR, um þá spurningu hvort réttlætanlegt sé að aflétta hinni takmörkuðu ábyrgð í þeim aðstæðum þar sem hlutafélagaformið hefur verið misnotað.

Líflegar umræður voru að fundinum loknum.

Ábyrgð hluthafa 1

Ábyrgð hluthafa 2

Ábyrgð hluthafa 3

Ábyrgð hluthafa 4

Ábyrgð hluthafa 5

Ábyrgð hluthafa 6



 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica