Nemendur í starfsnámi fá atvinnutilboð
Góður árangur varð af starfsnámi í viðskiptadeild HR í haust. Um helmingur þeirra nemenda sem tóku starfsnám í viðskiptadeild haustið 2009 fengu í kjölfarið tilboð um fastráðningu eða verkefnavinnu. Þetta eru góðar fréttir fyrir viðskiptadeild og Háskólann í Reykjavík. Á tímum erfiðs vinnumarkaðar gefa þær vísbendingu um að nemendur viðskiptadeildar hafi staðið sig mjög vel og séu eftirsóttir starfskraftar. Nú hefur annar umgangur starfsnáms í viðskiptadeild farið af stað. Að þessu sinni bjóða 12 fyrirtæki 16 nemendum upp á starfsnám. Verður áhugavert að fylgjast með hvort þessi hópur nái sama frábæra árangrinum og sá fyrri, en viðskiptadeild HR varð í fyrrahaust fyrstur íslenskra viðskiptaháskóla til að bjóða nemendum sínum starfsnám.

