Menntamálaráðherra og borgarstjóri opna HR með formlegum hætti
Um 500 manns komu saman í dag á opnunarhátíð Háskólans í Reykjavík við Menntaveg 1 í Nauthólsvík í dag.
Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri klipptu á borða og opnuðu þar með nýbyggingu HR með formlegum hætti. Þær höfðu báðar á orði að það væri sérlega ánægjulegt að fá tækifæri til að klippa á borða og vígja nýtt hús á þessum tímum, og að það væri því miður sjaldgæfur atburður nú til dags.
Svafa Grönfeldt, fráfarandi rektor HR og Ari Kristinn Jónsson, verðandi rektor HR, ávörpuðu samkomuna og að lokum flutti Finnur Oddsson, formaður háskólaráðs og framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands ávarp, þar sem hann þakkaði sérstaklega þeim tveimur konum sem gegnt hafa stöðu rektors við HR, Svöfu og Guðfinnu S. Bjarnadóttur, og sagði þær eiga hvað mestan heiður af því að þessi bygging væri nú orðin að veruleika. Áður hafði Svafa fært Þorkeli Sigurlaugssyni, framkvæmdastjóra þróunar og fjármálasviðs HR, sérstakar þakkir fyrir að hafa stýrt framkvæmdum við húsið frá fyrsta degi allt fram á síðasta dag.
Finnur Oddsson lauk máli sínu á að skora á rektorana þrjá, menntamálaráðherra og borgarstjóra að skella sér í sjósund áður en skólastarfi lyki í vor, líkt og stór hluti starfsmanna HR væri þegar farinn að gera. Verður spennandi að fylgjast með því hvort þau verði við áskoruninni með hækkandi sól og hitastigi sjávar.







