Forsíðufréttir

Viðskipti með fjármálagerninga – ný bók eftir Aðalstein E. Jónasson

15.1.2010

Bókaútgáfan Codex hefur gefið út ritið Viðskipti með fjármálagerninga eftir Aðalstein E. Jónasson.

Aðgangur fyrirtækja að fjármagni er lífæð atvinnulífsins en slíkur aðgangur felst að stórum hluta í útgáfu og sölu á mismunandi tegundum fjármálagerninga. Er þar til dæmis um að ræða viðskipti og þjónustu með hlutabréf, skuldabréf, víxla hlutdeildarskírteini og afleiður.

Viðskipti með slíka gerninga eiga undir högg að sækja eftir það mikla áfall sem riðið hefur yfir íslenskt efnahagslíf undanfarin misseri. Nauðsynlegt er að kryfja til mergjar lög og reglur sem gilda á þessu sviði, en síðustu 15 árin hefur mjög flókið og umfangsmikið alþjóðlegt regluverk, byggt á reglum Evrópusambandsins, smám saman fest hér rætur. Þar á meðal eru almennar reglur um viðskipti með fjármálagerninga, vernd fjárfesta, fjármálafyrirtæki og eftirlitsaðila, sem og reglur sem taka á innherjaviðskiptum og markaðsmisnotkun.

Markmið bókarinnar er að hjálpa lesendum að skilja út á hvað þetta viðamikla regluverk gengur og tryggja að á einum stað geti þeir nálgast ítarlega og vandaða umfjöllun um allar þær reglur sem gilda hér á landi um viðskipti með fjármálagerninga.

Um höfundinn

Aðalsteinn E. Jónasson hefur víðtæka reynslu af starfsemi fjármálafyrirtækja, bæði frá sjónarhorni fræðimanns og starfandi lögmanns á þessu sviði. Hann er dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, en hann hefur auk þess starfað sem lögmaður allt frá árinu 1992, er hann útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands. Aðalsteinn lauk LL.M-gráðu frá Harvard-háskóla árið 2000 þar sem hann sérhæfði sig í alþjóðlegri löggjöf á fjármagnsmarkaði. Aðalsteinn er forstöðumaður Fjármálaréttarstofnunar HR.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica