Útskrift frumgreinamenntar Opna háskólans í HR
28 nemendur frumgreinanáms Háskólans í Reykjavík voru útskrifaðir með frumgreinapróf laugardaginn 16. janúar. Af þessum 28 nemendum voru þrír, sem stundað hafa frumgreinanám HR hjá Háskólasetri Vestfjarða. Það má rekja til samnings, sem Háskólasetur Vestfjarða gerði við HR vorið 2008 um að bjóða frumgreinanám HR í staðarnámi á Ísafirði. Útskriftin fór fram í nýju húsi Háskólans í Reykjavík í Nauthólsvík. Við athöfnina fluttu Guðrún Högnadóttir, framkvæmdastjóri Opna háskólans og Peter Weiss, forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða ávörp. Af hálfu útskriftarnema töluðu Guðmundur Óskar Reynisson og Ragnar Björgvinsson og af hálfu eldri nemenda Þórður Víkingur Friðgeirsson, lektor í tækni- og verkfræðideild HR. Gospelkór HR söng nokkur lög. Við útskriftina hlaut Einar Bjarni Pedersen viðurkenningu Samtaka iðnaðarins fyrir framúrskarandi árangur í frumgreinanámi. Eftir að nemendur höfðu fengið skírteini sín ávarpaði Svafa Grönfeldt, rektor HR, hina nýútskrifuðu nemendur.

