Forsíðufréttir

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík

Dr. Ari Kristinn Jónsson tekur við embætti rektors HR

23.1.2010

Brautskráning frá Háskólanum í Reykjavík fór fram í Háskólabíói í dag. Alls voru 235 nemendur brautskráðir frá skólanum; 1 með doktorsgráðu, 59 með meistaragráðu, 134 með bakkalárgráðu og 41 með diplómagráðu. Flestir útskriftarnemanna eru úr viðskiptadeild eða 91. 56 nemendur útskrifuðust með próf úr tækni- og verkfræðideild, 33 nemendur útskrifuðust úr kennslufræði- og lýðheilsudeild, 32 úr lagadeild og 23 frá tölvunarfræðideild. Kynjahlutföll hinna brautskráðu eru mjög jöfn, 120 konur og 115 karlar. Elsti útskriftarneminn að þessu sinni er 68 ára og útskrifast hann með diplómagráðu í stærðfræði frá kennslufræði- og lýðheilsudeild.

Nýr rektor HR tekur við embætti

Tímamót urðu í sögu Háskólans í Reykjavík í dag þegar dr. Ari Kristinn Jónsson tók við embætti rektors af dr. Svöfu Grönfeldt, sem gegnt hefur embættinu í 3 ár. Ari Kristinn er 3. rektorinn í sögu skólans, en hann hefur um 3ja ára skeið gegnt stöðu forseta tölvunarfræðideildar HR. Áður hafði Ari starfað hjá NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, og leitt þar stór rannsóknarverkefni á sviði gervigreindar.

70% útskriftarnema hafa fengið vinnu

Háskólinn í Reykjavík hefur fylgt þeim sið um margra ára skeið að kanna hversu stór hluti útskriftarnema hefur fengið vinnu við útskrift. Niðurstöður könnunarinnar að þessu sinni eru mjög ánægjulegar í ljósi atvinnu- og efnahagsástandsins, en um 70% þeirra sem ekki ætla í áframhaldandi nám eru nú þegar komin með vinnu.

HR í Nauthólsvík

Háskólinn í Reykjavík stendur á fleiri tímamótum um þessar mundir. Skólinn hefur nýlega flutt lungann af starfsemi sinni í glæsilega nýbyggingu skólans í Nauthólsvík. Í vetur stunda rúmlega 3000 nemendur nám við Háskólann í Reykjavík, þar af eru 2300 nemendur í nýja húsinu í Nauthólsvík, en öll starfsemi skólans flytur í nýja húsið í sumar. Búast má við að Háskólinn í Reykjavík útskrifi um 800 nemendur á þessu ári.

Utskrift-HR-jan-2010


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica