Léttari æska fyrir barnið þitt
Vefurinn Léttari æska fyrir barnið þitt (www.léttariæska.is) var opnaður í Háskólanum í Reykjavík í dag.
Vefurinn hefur að geyma upplýsingar, ráð og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga vel að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir ofþyngd þeirra, en ofþyngd og offita barna og unglinga hefur aukist mikið á síðustu áratugum. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) áætlaði að allt að 20 milljónir barna í heiminum, undir 5 ára aldri, væru of þung árið 2005.
Heimasíðan er gríðarlega yfirgripsmikil. Þar getur fólk m.a. kynnt sér afleiðingar offitu hvort sem það eru líkamlegar, félagslegar eða andlegar afleiðingar. Ennfremur geta foreldrar kynnt sér helstu ástæður þess að offita og ofþyngd barna hefur aukist svo gríðarlega á síðustu árum, en þær breytingar má einkum rekja til breytts mataræðis, hreyfingarleysis og erfðaþátta. Foreldrum er ennfremur veitt ráðgjöf til að koma í veg fyrir eða stemma stigu við offitu barna þeirra í formi aukinnar hreyfingar og skynsamlegs mataræðis.
Síðast en ekki síst er að finna matar og hreyfidagbók fjölskyldunnar á þessum nýja vef, en hún getur auðveldað foreldrum að skipuleggja matar- og hreyfivenjur fjölskyldunnar og stuðlað að heilbrigðara líferni og léttari og skemmtilegri æsku fyrir börn og unglinga.
Verkefnið Léttari æska fyrir barnið þitt, www.léttariæska.is, var hluti af meistaraverkefni Hrundar Scheving í lýðheilsufræðum við kennslufræði og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík.


