Forsíðufréttir

Hvenær er landráð landráð?

26.1.2010

Guðni Th. Jóhannesson, lektor við laga- og viðskiptadeild HR, flutti erindi um landráð og sögu landráða á Íslandi í Háskólanum í Reykjavík í dag. Þar rakti hann sögu landráða á Íslandi í stuttu máli og velti upp ýmsum hliðum á tali og ásökunum um landráð sem skotið hafa upp kollinum í samfélaginu eftir hrunið haustið 2008.

Guðni lýsti í fyrirlestrinum þeirri skoðun sinni að nota ætti hugtök á borð við landráð og byltingu varlega í tengslum við fjármálahrunið. Að öðrum kosti væri sú hætta fyrir hendi að merking svo alvarlegrar hugtaka rýrnaði.

Að loknum fyrirlestri Guðna voru opnar umræður og fyrirspurnir.

Landráðafundur


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica