Forsíðufréttir

Fræ ársins veitt í fyrsta sinn

Metnaðarfullar tækninýjungar sem geta leitt til verulegra umbóta í samfélaginu

27.1.2010

Hugmyndir Ingólfs Harðarsonar, flugvirkja og rafeindavirkja, og Jóhannesar Loftssonar, efnaverkfræðings og byggingaverkfræðings, eru Fræ ársins 2010. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík og formaður dómnefndar, tilkynnti um verðlaunin við hátíðlega athöfn í HR í dag og Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital, afhenti verðlaunin.

Fræið er frumkvöðlasamkeppni á vegum Háskólans í Reykjavík í samstarf við Klak – nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins, Hugmyndahús háskólanna og Auði Capital. Markmið keppninnar er að styðja við frumstig nýsköpunar og gefa þar með frumkvöðlum tækifæri til að breyta hugmynd eða frumgerð í viðskiptaáætlun og sprotafyrirtæki. Verðlaunahafar fá samtals eina milljón króna, vinnuaðstöðu og niðurfelld skólagjöld í Viðskiptasmiðju Klaksins.

Verðlaunaféð notað til að stofna fyrirtæki

Ingólfur hefur þróað nýja tegund af undirvagni fyrir rafmagnsfarartæki sem gerir þeim kleift að keyra beint til hliðar. Nýjungin felst í fimmta hjólinu undir miðjum bílnum sem bæði drífur hann áfram og stýrir. Ingólfur er stoltur og þakklátur og segir að verðlaunin hafi gríðarlega mikla þýðingu fyrir sig. Iðnaðurinn í kringum hugmynd sem þessa er varla til staðar á Íslandi og þar af leiðandi hefur verið erfitt að veita henni brautargengi, þó að öllum hafi litist vel á hana.“

  • Kynning á hugmyndinni - Myndband á Netvarpinu
  • Ingólfur Harðarson, s. 820 0889, ingolfur.hardarson@gmail.com

Jóhannes hefur í samstarfi við bandarískan samstarfsaðila þróað örþunnan loftræstibúnað fyrir hús sem er allt að tíu sinnum þynnri en sambærilegt öflugt tæki á markaðnum. Búnaðurinn á að veita inn fersku lofti, leysa rakavandamál og auka þannig heilnæmi bygginga. Jóhannes segir verðlaunin fela í sér mikla viðurkenningu. „Þetta er ákveðið upphaf því verðlaunaféð verður notað til að stofna fyrirtæki um verkefnið,“ segir hann. „Einnig vonast ég til að sú kynning sem verkefnið fær geti vakið áhuga réttra fjárfesta, sem sæju þau tækifæri sem í þessu verkefni felast.“

Í rökstuðningi dómnefndar segir að bæði þessi verkefni séu metnaðarfullar tækninýjungar og að þau geti leitt til verulegra umbóta í samfélaginu, sér í lagi varðandi orkunotkun, kostnað og umhverfi.

Stuðlar að fjölbreyttari atvinnustarfsemi

„Hlutverk háskóla er kennsla, rannsóknir og nýsköpun,“ segir Ari Kristinn. „Á tímum sem þessum er sérstaklega mikilvægt að virkja þá krafta og þær hugmyndir sem fólk hefur og nýta háskólaumhverfið til að gera þær hugmyndir að veruleika. Þannig má stuðla að fjölbreyttari atvinnustarfsemi á Íslandi.“

Þetta er í fyrsta sinn sem Fræið er veitt. Stefnt er að því að keppnin verði haldin árlega. Auglýst var eftir hugmyndum í lok síðasta árs og var þátttakan mjög góð. Dómnefnd valdi vinningshafa úr fjölbreyttum hópi frumkvöðla.

Í dómnefndinni eru: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, Eyþór Ívar Jónsson, forstöðumaður Klaksins, Svafa Grönfeldt, fyrrverandi rektor HR, Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Auði Capital og Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris Invest.

Rökstuðningur dómnefndar

Við mat á umsóknum um Fræ ársins 2010 horfði dómnefndin til ýmissa þátta, en sér í lagi var litið til tæknilegs nýnæmis og mögulegra áhrifa hugmyndarinnar ef vel tækist til. Niðurstaða dómnefndar var að velja tvö verkefni sem deila með sér verðlaununum. Verkefnið „Örþunnt loftræstikerfi fyrir byggingar“ [Jóhannes Loftsson] snýst um mikilvæga tæknilega nýjung í loftræstikerfum fyrir byggingar, þar sem ný tegund af viftum er undirstaða loftræstikerfa sem eru sparneytnari, minni og sveigjanlegri. Verkefnið „Nuevo Vehicles“ [Ingólfur Harðarson] snýst um nýja tækni í hönnun undirvagna fyrir bifreiðar, þar sem drifkerfi og stýrikerfi eru mun sveigjanlegri en á bifreiðum í dag. Bæði þessi verkefni eru metnaðarfullar tækninýjungar og geta leitt til verulegra umbóta í samfélaginu, sér í lagi varðandi orkunotkun, kostnað og umhverfi.


 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica