Fyrsta útskrift meistaranema REYST
Hitaveita gegn orkufátækt og hagkvæmni kolefnisbindingar í bergi
Fyrsti nemendahópurinn frá alþjóðlega orkuskólanum REYST, sem rekinn er af Orkuveitu Reykjavíkur, Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands var útskrifaður í dag. Níu nemendur frá fimm löndum luku meistaraprófi á sviði sjálfbærrar orku, ýmist á vettvangi verkfræði, jarðfræði eða viðskipta.
Þetta er í fyrsta sinn sem háskólarnir tveir útskrifa nemendur sameiginlega.
Útskriftarathöfnin fór fram í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að viðstöddum fjölda fólks, þar á meðal aðstandendum meistaranna og voru margir þeirra langt að komnir.
Útskriftarhópurinn hóf nám síðsumars árið 2008 og fjórir nemendur úr þessum fyrsta árgangi REYST-nema ljúka námi í vor, tveir Íslendingar, einn frá Fílabeinsströndinni og einn frá Filippseyjum.
Lokaverkefni meistaranemanna eru afar fjölbreytt og spanna allt frá rannsókn á kostum hitaveitna til baráttu gegn orkufátækt í Bretlandi til hagkvæmni vísindaverkefnisins, sem unnið er að við Hellisheiðarvirkjun og felst í að binda koltvísýring sem steind í bergi. Í töflunni hér að neðan er yfirlit yfir útskriftanema dagsins og verkefni þeirra.
First REYST MSc graduation
District heating to fight fuel poverty and profitability of CO2 sequestration in basalt
The first MSc students graduated today from the international programme REYST – a cooperation between Reykjavik Energy, the University of Iceland and Reykjavik University. A total of nine students from five different countries finished MSc degrees in the fields of sustainable energy in either engineering, geological sciences or business.
The event is historical as this was the first time the two universities graduate students with a joint master's degree.
The graduation ceremony was held at the Reykjavik Energy headquarters and was attended by a number of people, including the student´s families.
The graduating students started their studies at REYST in August 2008 and four of the first group will finish this spring.
The MSc project topics are very diverse and address themes such as the potential to use district heating in the UK to fight fuel poverty to a profitability study on sequestrating CO2 in basalt in Iceland.
The table below contains information on the graduating students and the titles of their projects.


