Hlýtur heiðursverðlaun breska sálfræðifélagsins
Gísli H. Guðjónsson, réttarsálfræðingur og rannsóknarprófessor við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR, hefur verið sæmdur heiðursverðlaunum breska sálfræðifélagsins (The British Psychological Society) fyrir ævistarf sitt og framlag til sálfræðinnar.
Gísli var skipaður fyrsti prófessor í réttarsálfræði við King‘s College í London fyrir 10 árum þar sem hann starfar enn. Hann hóf störf við Háskólann í Reykjavík árið 2007 og hefur kennt réttarsálfræði við skólann. Gísli þykir einn fremsti sérfræðingur heims í fölskum játningum og hefur orðstír hans ratað víða.
Þetta er í fjórða sinn sem þessi verðlaun eru veitt, en að þessu sinni hlutu tveir fræðimenn þessa heiðursnafnbót, Gísli og Stanley Rachman, sem er prófessor emeritus við sálfræðideild háskólans í Bresku Kólumbíu í Vancouver í Kanada.

