Umhverfisáhrif krufin
Fjölmennur fundur var haldinn í Háskólanum í Reykjavík í dag á vegum Auðlindaréttarstofnunar HR og tækni- og verkfræðideildar HR. Fjallað var um hugtakið „umhverfisáhrif“ í lögum um mat á umhverfisáhrifum í ljósi nýlegs dóms Hæstaréttar í máli Vegagerðarinnar gegn Náttúruverndarsamtökum Íslands o.fl., sem laut að umhverfisáhrifum vegna lagningar vegar um Teigsskóg. Þá leituðust frummælendur við að svara því hvort og hvaða áhrif dómurinn kynni að hafa á framkvæmd mats á umhverfisáhrifum.
Framsögur á fundinum fluttu Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt við tækni- og verkfræðideild HR, Katrín Theodórsdóttir, héraðsdómslögmaður og Rut Kristinsdóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs hjá Skipulagsstofnun.

