Hærra hlutfall siðblindu á meðal stjórnenda en annarra

3.2.2010

Bandarískar rannsóknir hafa leitt í ljós að um 3,5% stjórnenda fyrirtækja eru haldin siðblindu eða sýna mjög sterk einkenni hennar. Þetta hlutfall er mun hærra en í almennu úrtaki, en rannsóknir benda til þess að 0,5 til 1% fólks sé haldið siðblindu.

Þetta var á meðal þess sem fram kom í fyrirlestri Nönnu Briem, geðlæknis á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, um siðblindu og birtingarmyndir hennar sem hún flutti í Háskólanum í Reykjavík í dag.

Gríðarlegur áhugi var á erindi Nönnu og stóðu þeir áheyrendur sem ekki fengu sæti upp með öllum veggjum. Fyrirspurnum og athugasemdum rigndi yfir Nönnu að erindi hennar loknu og þurfti fundarstjóri að lokum að slíta fundi áður en mælendaskrá tæmdist. Ljóst má vera að hugtakið siðblinda virðist ansi hugleikið mörgu fólki um þessar mundir.

Nanna ritaði grein fyrir nokkru í tímaritið Geðvernd. Þar vísar hún í fullyrðingar bandarískra geðlækna sem telja að siðblinda hafi orðið fyrirtækjum á borð við Enron að falli.

Hér að neðan er hægt að kynna sér umfjöllun fjölmiðla um fyrirlesturinn.

2. febrúar

Bylgjan: Reykjavík síðdegis (viðtal við Stefán Einar Stefánsson, viðskiptasiðfræðing og fundarstjóra)

3. febrúar

Fréttablaðið: Siðblindir í röðum stjórnenda (viðtal við Nönnu)

mbl.is: Siðblinda finnst allsstaðar (viðtal við Nönnu)

Stöð 2: Auka líkur á að siðblindingjar raðist í stöður hér á landi (viðtal við Nönnu)

Ríkisútvarpið, Spegillinn: Nanna Briem um siðblindu (viðtal við Nönnu)

visir.is: Siðblindingjar raðast í stjórnunarstöður


Sidblinda-3

Sidblinda-4

Sidblinda-6

Sidblinda-5


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica