UNGT FÓLK UTAN SKÓLA - Brotin sjálfsmynd og vanlíðan

5.2.2010

Ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus líður verr en þeim ungmennum sem eru í námi. Tengsl þeirra við fjölskyldu sína eru einnig veikari og þau virðast síður upplifa stuðning frá foreldrum sínum en þau ungmenni sem stunda nám.

Þessar og fleiri niðurstöður má lesa úr rannsókninni UNGT FÓLK - UTAN SKÓLA 2009, en niðurstöður hennar voru kynntar í Háskólanum í Reykjavík í dag.

Rannsóknin beinist að högum og líðan aldurshópsins 16 til 20 ára sem ekki stundar nám við framhaldsskóla á Íslandi.

Á meðal athyglisverðra niðurstaðna í rannsókninni má nefna:

  • Ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus líður verr en þeim sem eru í námi.
  • Tengsl þeirra ungmenna sem eru í vinnu eða atvinnulaus, við fjölskyldu sína, eru veikari en þeirra sem eru í skóla og þau virðast frekar upplifa skort á stuðningi frá foreldrum sínum.
  • Ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus telja sig eiga erfiðara með að fá umhyggju og hlýju frá foreldrum sínum en þau ungmenni sem eru aðallega í námi. Foreldrar virðast líka frekar fylgjast með því hvar og með hverjum þau ungmenni eru sem eru í námi. (Rannsóknir Rannsókna & greiningar hafa áður leitt í ljós að stuðningur foreldra, eftirlit og aðhald er veigamikill þáttur í því að tryggja almenna velferð barna og ungmenna.)
  • Ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus eru líklegri en þau sem eru í námi, til að vera með brotna sjálfsmynd. Þessi ungmenni virðast frekar upplifa það að hafa engan til að tala við, vera einmana, eiga erfitt með eignast vini, upplifa sig misheppnuð, finnast þau einskis nýt o.fl.
  • Rannsóknin leiðir einnig í ljós að þau ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus, virðast líklegri en þau sem eru í námi til að finna til ýmissa þunglyndiseinkenna á borð við að bresta auðveldlega í grát eða langa til að gráta, vera niðurdregin eða döpur, ekki spennt fyrir að gera neitt, finnast framtíðin vonlaus og að hugsa um að stytta sér aldur. Margt af þessu á sérstaklega við um ungmenni sem eru yngri en 18 ára og atvinnulaus. Einnig er vert að benda á að þau ungmenni sem eru yngri en 18 ára og atvinnulaus eru líklegri en önnur ungmenni til að upplifa það að finnast allir hafa brugðist sér. Þau ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus, virðast jafnframt telja andlega og líkamlega heilsu sína lakari en þau ungmenni sem eru í námi.
  • Ungmenni sem eru í námi virðast frekar en þau sem eru í vinnu eða atvinnulaus taka þátt í skipulögðu félags- eða tómstundastarfi. Þau ungmenni sem eru atvinnulaus virðast einnig síst stunda íþróttir eða líkamsrækt. Enn fremur eru atvinnulaus ungmenni síður líkleg til að æfa eða keppa með íþróttafélagi.
  • Þá leiðir rannsóknin í ljós að þau ungmenni sem eru í vinnu eða atvinnulaus reykja frekar en þau sem eru í námi. Þau neyta fremur áfengis og ólöglegra vímugjafa en þau ungmenni sem eru í námi.

Þessar niðurstöður eru þýðingarmiklar fyrir þær stofnanir og einstaklinga sem móta og framkvæma stefnu í málefnum ungs fólks á Íslandi. Eins og staðan er í samfélaginu í dag, þá er litla vinnu að fá og mikil hætta á að ungmennin sitji uppi aðgerðarlaus. Það er því þörf á að skoða alla þessa þætti í samhengi og ekki síst með tilliti til aðstæðna í samfélaginu. Brottfall úr framhaldsnámi er því verulegt áhyggjuefni á þeim tímum sem við lifum nú. Sem dæmi má nefna að árið 2005 voru 94% 16 ára fæðingarárgangs skráð í nám að hausti. Ári seinna, haustið 2006 voru 85% sama árgangs (þá 17 ára) skráðir í slíkt nám í framhaldsskólum. Loks má sjá að um 69% árgangsins eru enn skráð í nám árið 2008, þá 19 ára gömul. Á tveimur árum höfðu því 25% úr einum árgangi hellst úr námi. Í ljósi niðurstaðna þessarar rannsóknar er líðan þessara ungmenna verulegt áhyggjuefni.

Álfgeir Logi Kristjánsson, lektor við kennslufræði og lýðheilsudeild HR, kynnti niðurstöður rannsóknarinnar. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Katrín Jakobsdóttir mennta-og menningarmálaráðherra sátu fundinn og tóku þátt í umræðum.

Rannsóknin er unnin að frumkvæði mennta- og menningarmálaráðuneytisins og með stuðningi Forvarna- og framfarasjóðs Reykjavíkurborgar.

Utan skóla 1

Utan skóla 2

Utan skóla 4Utan skóla 3


 

Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica