Kennsluverðlaun Háskólans í Reykjavík 2010
Guðmundur hefur starfað við lagadeild HR frá árinu 2003. Sérsvið hans eru skaðabótaréttur, vátryggingaréttur, sjó- og flutningaréttur og almannatryggingaréttur og hefur Guðmundur kennt fjölda námskeiða við HR á þessum sviðum.
Haustið 2007 gáfu Guðmundur og Ragnhildur Helgadóttir, prófessor við lagadeild HR, út bókina Almannatryggingar og félagsleg aðstoð, en það rit er fyrsta ritið á Íslandi sem fjallar með yfirgripsmiklum hættu um íslenska almannatryggingakerfið og er grundvallarrit á sínu sviði.
Tilgangur kennsluverðlauna Háskólans í Reykjavík er að hvetja til nýsköpunar og þróunarstarfs í kennslu. Dómnefnd sem í sitja rektor, konrektor, formaður námsráðs, forstöðumaður kennslusviðs, formaður Stúdentafélags HR og framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála fer yfir tilnefningar frá nemendum og starfsmönnum og byggir nefndin val sitt á þeim. Alls bárust dómnefnd 68 tilnefningar, aðallega frá nemendum skólans. Fjöldi nemenda í lagadeild tilnefndi Guðmund og á meðal þess sem tiltekið var í rökstuðningi þeirra var að Guðmundi tækist alltaf að gera námsefnið áhugavert og skemmtilegt, og að hann gerði miklar kröfur til nemenda sinna.
Guðmundur tók við verðlaununum af mikilli hógværð. Hann lagði áherslu á það í þakkarávarpi sínu að kennsla væri aldrei og gæti ekki verið eins manns vinna. Að koma fólki til mennta væri hópverkefni og í því hópverkefni væri æskilegt að hafa það að markmiði að sem flestir nemendur stæðust þau próf sem fyrir þá væru lögð. Það gerðu menn ekki með því að hafa prófin einföld og námsefnið létt, öðru nær, kennurum bæri að gera miklar kröfur til nemenda sinna, en meiri kröfur til sjálfs sín. Þannig næðu góðir kennarar árangri sem skilaði sér til nemenda þeirra.
Á myndinni hér að neðan eru frá vinstri: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, John B. Vander Sande, konrektor HR og Guðmundur Sigurðsson, handhafi kennsluverðlauna HR 2010 og prófessor við lagadeild HR.

