Rannsóknarverðlaun Háskólans í Reykjavík 2010
Magnús kom til starfa við tölvunarfræðideild HR frá árinu 2007, eftir að hafa starfað við tölvunarfræðideild HÍ frá árslokum 2001. Sérsvið hans eru á sviði reiknirita, netafræða og lífupplýsingafræði.
Magnús hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir rannsóknir sínar og hann hlaut m.a. Hvatningarverðlaun Rannís árið 2001, en þau eru ein virtasta viðurkenning sem veitt er í íslensku vísindasamfélagi.
Magnús hefur fengið birtar yfir 100 ritrýndar vísindagreinar á ferli sínum, sem hann hefur ýmist ritað einn eða í samstarfi við aðra fræðimenn, en samstarfsmenn hans í rannsóknum og fræðaskrifum eru tæplega 80 talsins, þ. á m. margir fremstu vísindamenn heims á sviðum tölvunarfræðirannsókna. Samstarfsmenn Magnúsar koma víða að en aðallega hefur hann unnið með bandarískum og japönskum vísindamönnum.
Í álitsgerð dómnefndar segir að Magnús sé einn þekktasti vísindamaður Íslands. Hann sé afkastamesti fræðimaður þjóðarinnar á sviði tölvunarfræða (með yfir 100 ritrýndar útgáfur) og að hann sé sá íslenski stærðfræðingur sem mest hafi gefið út af vísindagreinum. Þá hafi hann fengið úthlutað fjölmörgum rannsóknarstyrkjum frá Rannís og honum hefur einnig verið boðið að stjórna rannsóknum við stofnanir víða um heim.
Tilgangur rannsóknarverðlauna HR er að hvetja fræðimenn skólans til frekari dáða. Í dómnefnd sitja rektor og konrektor HR, formaður rannsóknarráðs, forstöðumaður rannsóknarþjónustu og framkvæmdastjóri mannauðs- og gæðamála. Dómnefnd bárust 5 tilnefningar, en leitað var tilnefninga á meðal starfsmanna skólans. Í starfi sínu og vali skoðar dómnefnd sérstaklega ritrýndar greinar fræðimanna, árangur við að fá úthlutað styrkjum til rannsókna, framlag og þátttaka þeirra í rannsóknum innan HR, árangur þeirra við að laða ungt fólk til rannsóknarstarfa í HR og frumkvæði fræðimanna við að tengja akademískar rannsóknir við atvinnulífið.
Á myndinni hér að neðan eru frá vinstri: Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, John B. Vander Sande, konrektor HR og Magnús Már Halldórsson, handhafi rannsóknarverðlauna HR 2010 og prófessor við tölvunarfræðideild HR.

