Forsíðufréttir

Forsetalisti HR og nýnemastyrkur HR

10.2.2010

Nemendur á Forsetalista Háskólans í Reykjavík voru heiðraðir við hátíðlega athöfn í veitingahúsinu Nauthóli við HR í Nauthólsvík í dag. Á sama tíma var nýnemastyrkur Háskólans í Reykjavík afhentur.

Forsetalisti HR

Á forsetalista HR komast þeir nemendur sem bestum árangri ná á hverju próftímabili og fá þeir skólagjöld næstu annar niðurfelld.

Að þessu sinni komust 48 nemendur á Forsetalista HR og var skiptingin með eftirfarandi hætti á milli deilda:

Lagadeild 
6
 Kennslufræði- og lýðheilsudeild                                  
(fjórir nemendur voru jafnir á 3. ári og fær því hver þeirra helming skólagjalda einnar annar niðurfelldan)
  7
 Tölvunarfræðideild
7
 Viðskiptadeild - dagskóli
6
 Viðskiptadeild – Háskólanám með vinnu (HMV) 6
 Tækni- og verkfræðideild                                           
(10 í verkfræði og 6 í tæknifræði
16
 
Grunnnám - nýnemastyrkur

Alls hlutu 6 nemendur (3 karlar og 3 konur) í grunnnámi nýnemastyrk; 3 í hátækniverkfræði, 2 tölvunarfræðinemar og 1 nemi í viðskiptafræði.

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum nýnemastyrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Styrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins. Styrkurinn er eingöngu veittur nemendum sem hefja námið á haustönn.

Allir sem sækja um skólavist og eru með yfir 8,0 í meðaleinkunn á stúdentsprófi geta sótt um styrkinn, og til að geta sótt um styrkinn þarf fyrst að sækja um skólavist í HR. Aðeins þeir sem eru að fara í 3ja ára BSc/BA-nám geta sótt um styrkinn.

Meistaranám - nýnemastyrkur

Nýnemastyrkur meistaranáms var veittur tveimur nemendum úr lagadeild, karli og konu.

Háskólinn í Reykjavík veitir afburðanemendum sem hefja meistaranám styrk á fyrstu önn þeirra við skólann. Meistaranámsstyrkurinn nemur skólagjöldum á fyrstu önn námsins.

Opni háskólinn - FrumgreinaMennt

Auk þess fengu tveir nemendur FrumgreinaMenntar Opna háskólans styrki fyrir góðan námsárangur (karl og kona).

Forsetalisti LD

Forsetalistanemendur lagadeildar ásamt Þórði S. Gunnarssyni, forseta deildarinnar.

Forsetalisti KLD

Forsetalistanemendur kennslufræði- og lýðheilsudeildar ásamt Þorláki Karlssyni, forseta deildarinnar.

Forsetalisti TD

Forsetalistanemendur tölvunarfræðideildar ásamt Birni Þór Jónssyni, starfandi forseta deildarinnar.

Forsetalisti VD

Forsetalistanemendur viðskiptadeildar ásamt Friðriki Má Baldurssyni, forseta deildarinnar.

Forsetalisti TVD

Forsetalistanemendur tækni- og verkfræðideildar ásamt Gunnari Guðna Tómassyni, forseta deildarinnar.

Nýnemastyrkur

Handhafar nýnemastyrks HR ásamt Ara Kristni Jónssyni, rektori HR.

Forsetalisti Frumgreinar

Verðlaunahafar FrumgreinaMenntar OH ásamt Guðrúnu Högnadóttur, framkvæmdastjóra Opna háskólans í HR og Málfríði Þórarinsdóttur, forstöðumanni frumgreinanámsins.



 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica