Forsíðufréttir
Ungir kynferðisbrotamenn - málþing
Fullt var út úr dyrum á málþingi lagadeildar HR um unga kynferðisafbrotamenn sem haldin var í skólanum í dag.
Hér má sjá yfirlit yfir fyrirlesara þingsins:
- Dr. Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsfræði við HÍ.
- Chien Tai Shill, félagsráðgjafi og aðjúnkt við HR og HÍ.
- Aron Pálmi Ágústsson, nemi í hegðunarsálfræði við Lamarháskólann í Beaumont Texas og annar tveggja höfunda bókarinnar Enginn má sjá mig gráta. Barn í fangelsi.
- Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu.
- Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur hjá Ríkislögreglustjóra og hjá sálfræðistofunni Sálarheill.
- Hulda Elsa Björgvinsdóttir, saksóknari við embætti ríkissaksóknara.
- Sigríður Björnsdóttir, verkefnisstjóri Blátt áfram.
Málþingið var haldið í samstarfi við Blátt áfram - forvarnarverkefni gegn kynferðisofbeldi gegn börnum.

