Forsíðufréttir

Nemendur TVD hljóta verðlaun fyrir námsverkefni

19.2.2010

Tveir meistaranemar í tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík og einn tæknifræðingur hlutu nýverið styrki vegna námsverkefna sinna við HR. Sigurður Unnar Sigurðsson og Jón Sigurðsson fengu hvor um sig 500 þúsund króna styrk úr orkurannsóknarsjóði Landsvirkjunar og Sigrún Sigurhjartardóttir hlaut nemendaverðlaun Steinsteypufélags Íslands fyrir árið 2010. Nam verðlaunaféð 75 þúsund krónum.

Sigurður Unnar SigurðssonSigurður Unnar er í meistaranámi í byggingarverkfræði við Háskólann í Reykjavík. Styrkinn hlýtur hann fyrir meistaraverkefni sem unnið er í samstarfi við Rannsóknarmiðstöð Háskóla Íslands í jarðskjálftafræði á Selfossi. Markmið verkefnisins er að greina hegðun steyptra burðarvirkja vegna jarðhröðunar á upptakasvæðum jarðskjálfta.

Jón SigurðssonJón er í meistaranámi í byggingarverkfræði  við Háskólann í Reykjavík. Styrkinn hlýtur hann fyrir meistaraverkefni um  innleiðingu umhverfisvottunarkerfa mannvirkja í rekstri á Íslandi og áhrif þeirra á orkunotkun, innivist og lífsferilskostnað.

Sigrún SigurhjartardóttirSigrún brautskráðist frá HR í janúar með BSc í byggingartæknifræði. Verðlaunin hlýtur hún fyrir lokaverkefni sem unnið var í samstarfi við Einingaverksmiðjuna. Titill verkefnisins var: „Samvirkni ásteypulags á holplötur.“ Markmiðið var að sannprófa með prófunum að ásteypulag yrði hluti af heildarplötunni.

Styrkirnir frá Landsvirkjun og Steinsteypufélaginu eru veittir einu sinni á ári.


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica