Forsíðufréttir

Háskóladagurinn 2010

20.2.2010

Hátt á 4. þúsund manns heimsótti Ráðhús Reykjavíkur í dag þar sem Háskólinn í Reykjavík kynnti námsframboð sitt fyrir næsta skólaár, í félagi við fimm aðra háskóla; Háskólann á Akureyri, Háskólann á Bifröst, Háskólann á Hólum, Landbúnaðarháskóla Íslands og Listaháskóla Íslands. Á sama tíma kynnti Háskóli Íslands nám skólans í Gimli og Odda og í Norræna húsinu var framhaldsnám í Danmörku og Svíþjóð kynnt.

Forsetar deilda við HR, deildafulltrúar, námsráðgjafar, nemendur og annað starfsfólk HR tók á móti gestum, svaraði spurningum þeirra, útdeildi blöðum og bæklingum og veitti aðra ráðgjöf.

Háskólar landsins hafa um nokkurra ára skeið staðið saman að Háskóladeginum í febrúar ár hvert og er það mál manna að sjaldan eða aldrei hafi jafnmargir gestir nýtt sér þessa þjónustu og nú.

Á næstu dögum og vikum verða sams konar kynningar haldnar á nokkrum stöðum á landsbyggðinni sem hér segir:

2. mars verður kynning í Menntaskólanum á Egilsstöðum

3. mars verður kynning í Verkmenntaskólanum á Akureyri

10. mars verður kynning í Menntaskólanum á Ísafirði

 

Fjölmiðlar gerðu Háskóladeginum gríðarlega góð skil, en hér að neðan er listi yfir fréttir og viðtöl fjölmiðla um Háskóladaginn 2010.

Miðvikudagur 17. febrúar

Skessuhorn: Háskóladagurinn er á laugardaginn (hluti fréttatilkynningar)

Fimmtudagur 18. febrúar:

Fréttablaðið: Háskólarnir kynna námsframboð (umfjöllun og viðtal við Dagnýju (HÍ)

Föstudagur 19. febrúar:

Bylgjan: Í bítið (viðtal við Jón Örn (HÍ))

FM 957: Zúúber (viðtal við Álfrúnu (LHÍ) og Kristínu (HR)) (viðtalið byrjar á 1:36:00)

Ríkisútvarpið, Rás 2: H & M (viðtal við Jóhann Hlíðar (HR))

Kaninn: Morgunþáttur Gulla Helga (viðtal við Jóhann Hlíðar (HR) – ekki á Netinu)

Ríkisútvarpið, Rás 2: Síðdegisútvarpið (viðtal við Ara Kristin Jónsson, rektor HR)

Bylgjan: Reykjavík síðdegis (viðtal við Jón Örn (HÍ) og Jóhann Hlíðar (HR) – ekki á Netinu)

Laugardagur 20. febrúar:

visir.is: Háskólar kynna starfsemi sína í dag (hluti fréttatilkynningar – Eyjan.is setti tengil á þetta)

Morgunblaðið: Sprengjugengið sýnir kúnstir (hluti fréttatilkynningar)

Ríkisútvarpið, Rás 2: Bergsson & Blöndal (viðtal við Dagmar (HA) og Jóhann Hlíðar (HR)

mbl.is: Háskólar kynna nám sitt í dag (fréttatilkynning – amx.is setti tengil á þetta)

Pressan.is: Háskóladagurinn 2010: Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt... (fréttatilkynning)

Skessuhorn: Háskóladagurinn er í dag (hluti fréttatilkynningar (sama og á miðvikudegi))

Stöð 2: Kvöldfréttir (umfjöllun og viðtal við Hrafn Leó og Guðjón Hugberg, nemendur við HR)

Ríkissjónvarpið: Kvöldfréttir (umfjöllun og viðtal við Skúla Skúlason, rektor á Hólum)

Háskóladagurinn 2010 10

Háskóladagurinn 2010 12

Háskóladagurinn 2010 13

Háskóladagurinn 2010 14

Háskóladagurinn 2010 2

Háskóladagurinn 2010 3

Háskóladagurinn 2010 4

Háskóladagurinn 2010 5

Háskóladagurinn 2010 6

Háskóladagurinn 2010 7

Háskóladagurinn 2010 8

Háskóladagurinn 2010 9

Háskóladagurinn 2010 11

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica