Sjálfbærar samgöngur og byggðarskipulag
Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík stóð fyrir ráðstefnu um sjálfbærar samgöngur og byggðarskipulag föstudaginn 26. febrúar. Tilgangur hennar var að skapa umræðu um samgöngu- og skipulagsmál og samtvinnun þeirra, jafnt á landsvísu sem sveitarstjórnarstigi, allt frá almennri stefnumörkun og áætlanagerð til staðbundinna hönnunarlausna.
Tveir þekktir fræðimenn í skipulagsfræðum, Terry Moore frá Bandaríkjunum og Ben Hamilton-Baillie frá Bretlandi fluttu erindi á ráðstefnunni.
Terry Moore hefur áralanga reynslu og sérþekkingu á samþættingu samgangna og landnotkunar og efnahagslegum hliðum samgöngustefnu, og Ben Hamilton-Baillie er á meðal helstu sérfræðinga Evrópu í skipulagi gatna og göturýma og þá sérstaklega svokölluðum “shared spaces”.
Aðrir fyrirlesarar á ráðstefnunni voru:
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, aðjúnkt og námsbrautarstjóri við tækni- og verkfræðideild HR
- Patrick Driscoll, MSc skipulagsfræðinemi, Álaborgarháskóla og HR 2009
- Dagur B. Eggertsson, formaður samgönguráðs
- Haraldur Sigþórsson, lektor við tækni- og verkfræðideild HR
- Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri Reykjavíkur
- Gísli Marteinn Baldursson, formaður umhverfis- og samgönguráðs Reykjavíkur
Þá ávarpaði Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra ráðstefnugesti.
Viðtal við Terry Moore birtist í Fréttablaðinu á laugardag og Ben Hamilton-Baillie var gestur Egils Helgasonar í Silfur Egils í dag.

