HR-ingur hlýtur Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands 2010 voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. Verkefnið sem hlaut verðlaunin að þessu sinni heitir Súrefnis- og hjartsláttarnemi og vinningshafinn er Ásgeir Bjarnason. Hann lauk BSc-prófi í heilbrigðisverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík sl. vor og stundar nú meistaranám í heilbrigðisverkfræði í Finnlandi.
Leiðbeinendur Ásgeirs í verðlaunaverkefninu voru þeir Sigmar Guðbjörnsson og Hákon Óli Guðmundsson hjá Stjörnu-Odda.
Verkefnið fólst í því að hanna frumgerð súrefnismettunar- og hjartsláttarnema sem nota á við dýrarannsóknir og kanna hvaða vandamál koma upp við smíði og prófun á slíkum tækjum. Lokatakmark verkefnisins var að þróa örsmátt og ígræðanlegt mælitæki fyrir tilraunadýr þar sem einungis er þörf á smávægilegri aðgerð en hefur þann kost að draga mikið úr áhrifum vegna hegðunar dýrsins. Í þessum fyrsta áfanga verkefnisins var lögð áhersla á að finna út hvaða rafeindatæknileg vandamál koma upp við notkun á slíkum mælum og hvernig best er að leysa þau. Ásgeir náði vel þeim markmiðum sem lagt var upp með í verkefni sínu og gott betur en það, því niðurstöður úr verkefni hans eru nær raunverulegri vöruþróun en lagt var upp með.
Verkefnið og starf Ásgeirs mun hjálpa þróunarteymi Stjörnu-Odda við að taka næstu skrefin og flýta fyrir vöruþróun og hanna vöru sem er fyrst og fremst ætluð fyrir erlendan markað. Þar með hefst leiðangur verkefnisins í að þróa seljanlega vöru til útflutnings, sem spennandi verður að fylgjast með í framhaldinu. Verkefni Ásgeirs er þannig komið í fyrirmyndarflokk nemendaverkefna með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna sem þróast hafa í fullvaxin rannsóknar- og þróunarverkefni fyrirtækja með vöruþróun og útflutning að leiðarljósi.
HR með 2 tilnefningar
Annar HR-ingur var einnig tilnefndur til Nýsköpunarverðlaunanna að þessu sinni; Gunnar Steinn Valgarðsson, nemandi við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík. Hann er ennfremur heiðursnemandi í Aperio-kerfinu við HR.
Verkefni Gunnars Steins ber heitið „Sjálfvirki lestrar- og sýndarkennarinn“ og er það tölvuforrit með grafísku vélmenni sem kennir lestur. Hugmyndin að verkefninu spratt upp vegna nýrra rannsókna sem benda til þess að lestrarkunnátta í grunnskólum fari hnignandi. Verkefnið fól í sér vinnu að frumgerð hugbúnaðar sem veitir byrjendum í lestri möguleika á að þjálfa eigin lestrarkunnáttu með sérstakri aðstoð sjálfvirks lestrarkennara. Sjálfvirkni kennarans felst í gervigreind sem getur greint villur í lestri og leiðrétt notendur í rauntíma. Hagnýting þessa hugbúnaðar er ætluð til þess að hvetja byrjendur í lestri til þess að þjálfa sig í að bæta sína lestrarfærni.
Um verðlaunin
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru veitt árlega þeim námsmönnum sem hafa unnið framúrskarandi starf við úrlausn verkefnis sem styrkt var af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Verðlaunin voru fyrst veitt í ársbyrjun 1996 og eru því nú veitt í fimmtánda sinn. Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson afhendir verðlaunin árlega. Samtök iðnaðarins gefa verðlaunin í ár. Verðlaunagripirnir eru hannaðir af Ragnheiði Ingunni Ágústsdóttur myndlistarmanni og Sigurði Má Helgasyni hönnuði.
Um Nýsköpunarsjóð námsmanna
Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður árið 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknaverkefni. Styrkjum er úthlutað til kennara á háskólastigi, fyrirtækja, rannsóknastofnana eða einstaklinga sem teljast hafa sérþekkingu á ákveðnu sviði, til þess að ráða stúdenta til sumarstarfa. Markmið sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, jafnt fyrir atvinnulíf sem á fræðasviði.

