Forsíðufréttir

BBC heimsækir HR

4.3.2010

Fréttamenn breska ríkisútvarpsins (BBC) heimsóttu Háskólann í Reykjavík í vikunni og ræddu við nemendur í meistaranámi í alþjóðaviðskiptum um ástandið á Íslandi, horfur og væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.

Þeir Stephen Evans og Eric Graydon dvelja hér á landi í nokkra daga til að kynna sér íslenskt samfélag. Þeir reikna með að gera tvo þætti um Ísland sem verða sendir út á BBC World Service í næstu viku.

Evans og Graydon tóku langt viðtal við þrjá meistaranemendur og eins ræddu þeir við Vlad Vaiman, forstöðumann námsins.

BBC 1

BBC 2

Frá vinstri til hægri: Stephen Evans, Vlad Vaiman og Eric Graydon.



 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica