Forsíðufréttir
Heilbrigð sál í hraustum líkama
Um 100 manns sátu málþing Íþróttakennarafélags Íslands sem haldið var í Háskólanum í Reykjavík í Nauthólsvík í dag. Yfirskrift þingsins var Heilbrigð sál í hraustum líkama og var umfjöllunarefni þess íþróttir og íþróttakennsla í framhaldsskólum landsins.
Mikill fjöldi fyrirlesara flutti erindi á þinginu og því lauk með pallborðsumræðum. Auk þess var fundargestum boðið að skoða ný húsakynni HR í Nauthólsvík.

