Forsíðufréttir

Um þrjú hundruð frumkvöðlar hvaðanæva úr heiminum hittast í Reykjavík

8.3.2010

Gert er ráð fyrir því að um þrjú hundruð manns frá yfir þrjátíu löndum sæki alþjóðlega frumkvöðlaráðstefnu í Reykjavík dagana 24. til 26. mars. Ráðstefnan er haldin í samstarfi MIT-háskólans í Boston, Háskólans í Reykjavík og Innovit.

Meginþema ráðstefnunnar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýjanlegri orku.

MIT heldur slíka frumkvöðlaráðstefnu árlega í samstarfi við erlendan háskóla og er ráðstefnan í Reykjavík sú þrettánda í röðinni. MIT valdi HR til samstarfs í ár úr hópi 20 umsækjenda.

„Undirbúningur gengur mjög vel og koma þátttakendur víða að, til dæmis frá Afríku, Asíu og Ástralíu,“ segir Hrafnhildur S. Mooney, MBA-nemi við HR og einn skipuleggjandi ráðstefnunnar.

Í hópi þátttakenda eru meðal annars frumkvöðlar, stjórnmálamenn, háskólakennarar, fjárfestar og nemendur.

Tækifæri til að skiptast á skoðunum og skapa tengsl

Þekktir frumkvöðlar verða með erindi og má þar nefna Robin Chase, stofnanda og fyrrverandi forstjóra Zipcar og GoLogo. Hún var í fyrra valin ein af 100 áhrifamestu einstaklingum heims af Time Magazine.

Auk hennar halda erindi þau Alf Bjørseth, stofnandi Renewable Energy Corporation, Nader Darehshori, fyrrverandi forstjóri Houghton Mifflin útgáfurisans og stofnandi Cambian Learning og Ken Morse, stofnandi MIT Enrepreneurship Center, en hann hefur komið hundruðum sprotafyrirtækja á legg.

Ráðstefnan snýst þó ekki bara um fyrirlestra frá þekktum frumkvöðlum heldur einnig um það að gefa frumkvöðlum, fræðimönnum, nemendum og fjárfestum vettvang til að skiptast á skoðunum og skapa tengsl.

Skráning og nánari upplýsingar má finna hér.

 


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica