Forsíðufréttir

Forstöðumaður framhaldsnáms í viðskiptafræði - ný staða

12.3.2010

Dr. Vlad Vaiman, dósent við viðskiptadeild HR hefur verið ráðinn forstöðumaður framhaldsnáms í deildinni. Framhaldsnámið innifelur MBA-nám deildarinnar, meistaranám í alþjóðaviðskiptum, fjármálum, og reikningshaldi og endurskoðun, sem og doktorsnám í viðskiptafræði.

Sem forstöðumaður mun Vlad hafa stjórnunarumsjón með þessum námsbrautum. Hann mun leita tækifæra til að láta þessar námsbrautir styðja hver við aðra þannig að deildin geti eflst að akademískum styrk samhliða aukinni hagkvæmni í rekstri deildarinnar. Forstöðumaður framhaldsnáms mun einnig starfa náið með verkefnisstjórum og akademískum ráðgjöfum sem tengjast hverri námsbraut fyrir sig.

Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar HR, segir í tilkynningu til starfsmanna HR að með þessum skipulagsbreytingum verði viðskiptadeild enn betur í stakk búin til að bjóða – líkt og áður – framúrskarandi nám og þjónustu við nemendur auk annarra akademískra og stjórnunarlegra þátta sem veita viðskiptadeild HR sérstöðu gagnvart helstu keppinautum.

Breytingarnar taka formlega gildi í ágúst nk.

Vlad Vaiman


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica