Æft af kappi
Lið lagadeildar Háskólans í Reykjavík undirbýr sig um þessar mundir af kappi undir þátttöku í stærstu málflutningskeppni heims. Hún heitir Willem C. Vis International Commercial Arbitration Moot. Á vorönn 2010 hafa verið linnulausar málflutningsæfingar og síðasta æfingin áður en liðið fer út var í nýja dómsalnum í Nauthólsvík í dag.
Liðið heldur svo á næstu dögum utan til að taka þátt í tveimur æfingakeppnum, annarri í Düsseldor í Þýskalandi og hinni í Miskolc í Ungverjalandi, áður en haldið verður til Vínarborgar þar sem sjálf aðalkeppnin fer fram dagana 25. mars til 2. apríl.
Þóra Arnórsdóttir, aðstoðarritstjóri Kastljóss leit við á æfingu liðsins í dag og ræddi við einn liðsmanna, Lilju Bjarnadóttur, og þjálfara liðsins, Garðar Víði Gunnarsson, hdl. Afraksturinn var sýndur í þætti kvöldsins.

