Þúsundir manna heimsóttu HR

Hátt i 4.000 manns heimsóttu Háskólann í Reykjavík í dag á hinum árlega HR-degi skólans. Þetta var í fyrsta sinn sem nýbygging skólans í Nauthólsvík var opnuð almenningi og fóru arkitektar hússins reglulega með hópa fólks um húsið.
Dagurinn hófst hins vegar á sjósundi og stungu nokkrir tugir nemenda og starfsmanna til sunds í Nauthólsvík. Eftir baðið kalda var svo slakað á í heitum potti við Ylströndina og var hetjunum fært heitt kakó.
Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, setti svo HR-daginn formlega á hádegi. Allar deildir skólans kynntu það nám sem er í boði við skólann og fræði- og vísindamenn skólans veittu innsýn í hið öfluga vísinda- og rannsóknarstarfs sem fram fer við skólann.
Á meðal þess sem í boði var má nefna að laganemar veittu fólki ráðgjöf í glímunni við skattframtalið, nemendur í tækni- og verkfræði prófuðu kafbátinn sem þeir hafa verið að smíða í vetur, rafbíllinn sem nemendur smíðuðu í vetur var til sýnis, kennarar tækni- og verkfræðideildar fengu hár gesta til að rísa í bókstaflegri merkingu, Gospelkór HR söng fyrir gesti og hljómsveit erlendra skiptinema við HR, The Crazy Brewery, tróð upp.
Síðast en ekki síst ber að geta þess að úrslitakeppni HR-áskorunarinnar fór fram í dag. 6 lið tóku þátt í úrslitum HR-áskorunarinnar, en í ár fólst hún í því að hanna og smíða eggjavörpu. Varpan varð að geta kastað eggi frá vítalínu körfuboltateigs í gegnum körfuna lenda óbrotið á gólfinu. Skemmst er frá því að segja að þrjár varpanna sem kepptu í úrslitum náðu að leysa verkefnið fullkomlega af hendi. Á endanum stóð lið nemenda við Fjölbrautaskóla Suðurnesja uppi sem sigurvegari og fékk liðið vegleg verðlaun; frí skólagjöld á fyrstu önn og 150.000 króna peningaverðlaun. Í öðru sæti var lið nemenda við Byggingatækniskólann og í þriðja sæti var svo lið nemenda á frumgreinasviði HR.




