Metþátttaka á frumkvöðlaráðstefnu MIT, HR og Innovit
Metþátttaka er á alþjóðlegri frumkvöðlaráðstefnu MIT, HR og Innovit sem hófst í Reykjavík í morgun. Rúmlega fjögur hundruð manns sitja ráðstefnuna. MIT hefur haldið slíkar ráðstefnur víða um heim undanfarin tólf ár og hafa aldrei fleiri tekið þátt.
Ráðstefnan fer fram á Hilton Nordica hótelinu í Reykjavík og stendur hún yfir í þrjá daga. Meginþema hennar er hvernig yfirvinna megi efnahagskreppu með nýsköpun, frumkvöðlastarfi og endurnýjanlegri orku.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, setti ráðstefnuna rúmlega tíu í morgun en áður flutti Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, stutt ávarp.
Ráðstefnan er skipulögð af MBA-nemum HR og MIT-háskólans í Boston.
Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og gefa frumkvöðlum, fræðimönnum, nemendum og fjárfestum vettvang til að skiptast á skoðunum og skapa tengsl.
Sjá einnig hér: http://www.hr.is/mba/mitgsw/

