Sigurður Tómas fær framgang í stöðu atvinnulífsprófessors
Sigurði Tómasi Magnússyni hefur, í framhaldi af niðurstöðu matsnefndar frá 15. mars, verið veittur framgangur í stöðu atvinnulífsprófessors við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Sigurður Tómas er fyrsti einstaklingurinn sem hlýtur framangreint stöðuheiti við HR.
Í matsnefndinni áttu sæti: Guðrún Erlendsdóttir, fyrrverandi hæstaréttardómari og formaður nefndarinnar, dr. juris Guðmundur Sigurðsson prófessor og Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður.
Í niðurstöðu matsnefndarinnar segir orðrétt:
„Sigurður Tómas Magnússon hefur með námi sínu og starfsferli sýnt að hann hefur góð tengsl við atvinnulífið og samfélagið í heild, auk þess sem hann hefur mikla og góða reynslu af kennslu. Það er mat dómnefndar að Sigurður Tómas sé vel hæfur til að gegna starfi atvinnulífsprófessors við Háskólann í Reykjavík.“
Í reglugerð HR frá júní 2007 segir í ákvæði 3.1 um stöðuheitið atvinnulífsprófessor:
„Atvinnulífsprófessor er einstaklingur sem verið hefur leiðandi í atvinnulífinu á sínu sérsviði, er þekktur af verkum sínum og viðurkenndur sem áhrifavaldur á vinnubrögð í faginu. Hann skal einnig hafa sýnt fram á ótvíræða hæfni til kennslu og miðlunar á háskólastigi.“
Þórður S. Gunnarsson, forseti lagadeildar HR, segir í tilkynningu til starfsmanna HR í dag að Sigurður Tómas sé vel að þessari virðingu kominn. „Ég vil nota tækifærið og færa Sigurði innilegar þakkir fyrir margháttað og veigamikið framlag hans til lagadeildar HR á liðnum árum í þeirri von að við njótum starfskrafta hans á vettvangi Háskólans í Reykjavík um langa framtíð.“


