Forsíðufréttir

Sveinn, Gabríel og Jónatan hrepptu fyrsta sætið í Alpha-deildinni

28.3.2010

Lið þeirra Sveins Fannars Kristjánssonar, Gabríels Arthúrs Péturssonar og Jónatans Óskars Nilssonar varð í fyrsta sæti í Alpha-deild forritunarkeppni framhaldsskólanna.

Lið þeirra Fannars Ásbjörnssonar, Finnboga Darra Guðmundssonar og Elvars Arnar Hannessonar varð í fyrsta sæti í Beta-deild keppninnar. Og lið þeirra Unnars Freys Erlendssonar og Bjarka Ágústs Guðmundssonar varð í fyrsta sæti í Delta-deildinni.

Allir sigurvegararnir nema einn eru nemendur í Tækniskólanum. Gabríel í sigurliði Alpha-deildarinnar er nemi í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Úrslit voru kunngerð á laugardagskvöld. Tölvunarfræðideild HR stóð að keppninni í samvinnu við Nýherja og CCP. Sigurvegarar í Alpha-deild fengu niðurfelld skólagjöld hjá tölvunarfræðideild HR í eina önn en öll önnur verðlaun voru veitt af Nýherja, svo sem myndavélar, minnislyklar og heyrnartól.

Keppnin tókst með eindæmum vel. Um níutíu framhaldsskólanemar tóku þátt í henni og reyndi á forritunarhæfileika þeirra og sköpunargáfu. Þeir sátu því yfir fjölbreyttum verkefnum allan laugardaginn í húsakynnum HR við Nauthólsvík.

Markmið keppninnar er að efla og örva forritunaráhuga íslenskra ungmenna.

 

Forritun---sigurlid-alpha

Forritun-sigurlid-delta Forritun--sigurlid-beta


 

Fréttir eftir árum


Tungumál


Leita




Þetta vefsvæði byggir á Eplica