Grunnskólanemendur fá verðlaun í ólympíustærðfræði
Rúmlega hundrað grunnskólanemendur á aldrinum tíu til fjórtán ára voru um helgina í Háskólanum í Reykjavík verðlaunaðir fyrir árangur í ólympíustærðfræði. Krakkarnir voru í hópi 250 nemenda sem tóku þátt í 20 vikna námskeiði í ólympíustærðfræði í grunnskólum Reykjavíkur í vetur.
Nemendur Háskólans í Reykjavík leiðbeindu á námskeiðinu sem fram fór í tuttugu grunnskólum. Þar voru lagðar ýmsar stærðfræðiþrautir fyrir nemendurna sem reyndu á hugmyndaflug þeirra og rökhugsun. Eyrir Invest, CCP, menntasvið Reykjavíkurborgar og Alcan styrktu ólympíustærðfræðina.
Einu sinni í mánuði tóku nemendurnir þátt í stærðfræðikeppni þar sem þeir gátu unnið sér inn stig. Þeir sem voru í hópi þeirra sem hlutu samtals flest stig að lokum fengu gullverðlaunapening um helgina. Þeir sem voru í næsta hópi á eftir fengu silfurverðlaunapening en allir þeir sem tóku þátt í að minnsta kosti einni stærðfræðikeppni fengu viðurkenningarskjal.
Ólympíustærðfræði er verkefni sem á uppruna sinn í Ameríku. Námskeið sem þessi fara nú fram í yfir fjörutíu löndum og taka um 150 þúsund börn þátt í þeim á hverju ári. Ólympíustærðfræðin byrjaði í einum skóla á Íslandi fyrir fimm árum en nú fer námskeiðið fram í 20 skólum. Einnig fóru fram námskeið í Háskólanum í Reykjavík.
Í ólympíustærðfræði er lögð áhersla á innsæi og samvinnu. Markmiðið er að efla áhuga og ánægju af stærðfræði í gegnum þrautalausnir.
Það var hátíðleg stund í Háskólanum í Reykjavík við Ofanleiti á laugardag þegar krakkarnir fengu viðurkenningarskjöl sín og verðlaunapeninga. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, flutti ávarp við athöfnina. Chien Tai Shill, verkefnisstjóri við HR, skipulagði ólympíustærðfræðina. Hún ásamt leiðbeinendunum afhenti verðlaunin.




